Starfsreglur

1. Tilgangur

Samstarfsnefnd um gæðamál háskóla starfar í umboði íslenskra háskóla og Samtaka íslenskra stúdenta. Tilgangur Samstarfsnefndar um gæðamál háskóla er að samræma og efla gæðamál íslenskra háskóla með markvissri samvinnu allra fulltrúa nefndarinnar og annarra aðila er tengjast gæðamálum íslenskra háskóla.

2. Markmið

Markmið nefndarinnar er að stuðla að umbótum, þekkingarmiðlun og samráði í gæðamálum íslenskra háskóla með því að:

– Veita umsögn um breytingar á Rammaáætlun um eflingu gæða í íslenskum háskólum.

– Veita ráðgjöf til ráðuneytis háskólamála, og til Gæðamats háskóla varðandimálefni er varða gæði í starfi íslenskra háskóla.

– Deila reynslu, þekkingu og góðum starfsháttum á jafningjagrundvelli.

3. Skipan nefndarinnar

Aðalmenn:

o Einn fulltrúi frá hverjum háskóla skipaður af rektor viðkomandi háskóla. Fulltrúar geta sent staðgengil í sinn stað á fundi og einnig boðið fleirum að vera viðstaddir fundi en þó hefur hver háskóli einungis eitt atkvæði ef til atkvæðagreiðslu kemur.

o Tveir fulltrúar frá Landssamtökum íslenskra stúdenta (LÍS). Annars vegar formaður og hins vegar gæðastjóri.

Sértæk hlutverk:

– Formaður er kosinn úr hópi nefndarmeðlima á tveggja ára fresti og hafa þeir atkvæðisrétt sem eiga sæti í nefndinni. Hlutverk formanns er að boða fundi nefndarinnar og leysa úr málum á milli funda. Formaður heldur utan um fjármál nefndarinnar og gerir grein fyrir stöðu reiknings a.m.k. einu sinni á ári.

– Fulltrúi Samstarfsnefndar í REAC er kosinn á tveggja ára fresti, viðkomandisitur fundi REAC sem áheyrnarfulltrúi og miðlar til samstarfsnefndar.

4. Verkefni og ábyrgð

Samvinna og samráð:

o Efla samræmingu og samstarf milli háskóla varðandi gæðamál.

o Skiptast á upplýsingum, reynslu og hugmyndum um bestu aðferðir í gæðamálum.

o Stuðla að formfestu í vinnubrögðum er varða gæðamál.

Fræðsla og miðlun:

o Skipuleggja námskeið, fundi og ráðstefnur fyrir hagsmunaaðila.

Samstarf við Gæðamat háskóla

o Starfsmenn Gæðamats háskóla sitja formlega fundi samstarfsnefndar sem áheyrnarfulltrúar þar sem við á.

o Samstarfsnefnd um gæðamál háskóla situr ársfjórðungslega fundi með „Operational Group“ (formaður stjórnar, framkvæmdastjóri og sérfræðingur), tveimur vikum fyrir hvern stjórnarfund Gæðamats háskóla. Fastir dagskrárliðir: i) báðir aðilar greina frá sínu innra starfi, ii) ræða „Icelandic updates“ (fréttir um íslenska háskólastigið í stórum dráttum) fyrir komandi stjórnarfund Gæðamats háskóla, iii) samstarf um fræðsludagskrá, iv) önnur mál.

o Stjórn Gæðamats háskóla fundar einu sinni á ári með samstarfsnefnd. Fastir dagskrárliðir: i) báðir aðilar greina frá sínu innra starfi, ii) þróuníslenskra háskólastigsins, iii) samstarf um fræðsludagskrá og árlega ráðstefnu, iv) fulltrúar Samstarfsnefndar um gæðamál veita endurgjöf á framkvæmd og virkni rammáætlunar um eflingu gæða í íslenskum háskólum, v) önnur mál.

5. Fundir

Tíðni funda:

o Samstarfsnefndin skal funda að lágmarki fjórum sinnum á ári. Þar af skal einn fundur vera staðbundinn og munu háskólarnir skiptast á að bjóða heim. Viðbótarfundir eru haldnir eftir þörfum.

Fundarboð:

o Formaður boðar til funda með að lágmarki tveggja vikna fyrirvara með dagskrá.

Fundargerðir:

o Fundargerðir skulu skráðar og vistaðar á Teams-svæði nefndarinnar.

6. Ákvarðanataka

Meirihlutareglan:

o Ákvarðanir nefndarinnar skulu teknar með meirihluta greiddra atkvæða, ef atkvæði falla jöfn hefur atkvæði formanns aukið vægi.

o Einungis er hægt að greiða atkvæði ef 2/3 hlutar nefndarinnar eru viðstaddir.

Ágreiningsmál:

o Við ágreining skal leitast við að ná samkomulagi með samræðu og sáttameðferð.

7. Endurskoðun reglna

Starfsreglur nefndarinnar skulu endurskoðaðar á tveggja ára fresti eða eftir þörfum.

8. Gildistaka

Þessar reglur taka gildi frá og með [dagsetning] og gilda þar til annað verður ákveðið.